laugardagur, september 20, 2003


föstudagur, september 12, 2003

blabla

fimmtudagur, september 11, 2003

Hugleiðing 

� suður Jótlandi er óhemju magn af fólki sem er með sítt að aftan, þar er einnig óhemju mikið af hálfdauðum pulsuhundum...

Síðasti dagur í Sönderborg 

Mér leiddist ekki í dag frekar en aðra daga...byrjaði á því að þvo þvott (mylja úr nærbrókunum) og fór síðan í gífurlegt hjólaferðalag til Höruphav, leiðin lá í gegnum fallegan skóg, meðfram ströndinni, þegar þangað var komið hjólaði ég um bæjarfélagið sem er ekki mjög stórt. Síðan fór ég í bakarí, keypti mat og settist á hugljúfan stað niður við höfn og gúffaði í mig pizzusneið og Kaj köku. Ég skil ekki hvernig er hægt að borða heila Kaj köku, mér rétt tókst að gúffa í mig þriðjungi af andlitinu og báðum augunum. Síðan hjólaði ég til baka og fór að skoða safnið í Sönderborg kastala, svona sögu- þjóðminja- og listasafn. Mjög fínt safn með fullt af fínum munum eins og t.d. brotum úr eins Kakkel ovn og fannst á Hólum í sumar. Svo var heilmikið vopnasafn og einhver fremur ljót listaverk. Merkilegust fannst mér dýflissan, afar óvistlegur staður. Að lokum tók ég tölt í bænum og hitti svo Auði í fötex, þar sem hún var að kaupa í matinn handa mér og nú sit ég og skrifa meðan hún þrælar sér út í eldhúsinu við að sjóða pylsur.

Eins og sjá má hef ég bætt við litlum commenta dálki ef einhver skyldi vilja nýta sér slíkt, jeg er jafnvel byrjuð að setja inn nokkra hlekki og mun kannski bæta nokkrum við ef ég finn hjá mér hvatningu til slíkra verka...

miðvikudagur, september 10, 2003

MOJN (ójá á suður Jótlandi er ekki sagt hej, heldur mojn) 

� gær leigðum við Auður bíl og skelltum okkur yfir landamærin til Þýskalands, fyrir valinu varð Flensborg, alveg ljómandi hugguleg borg. Til að gera ferðina sem ódýrasta var farið á rent a wreck og vorum við svo heppnar að fá 87 módelið af Toyotu Corollu, ójá alveg eins og Gamli Gráni nema bara hvít og beinskipt. Ég var því öllum hnútum kunnug hvað bílinn varðaði og keyrði eins og herforingi til Þýskalands. Þegar við komum til Flensborgar skelltum við okkur á göngugötuna og röltum um miðbæinn, skoðuðum mörg falleg gömul hús og höfnina, síðan fórum við í verslunarmiðstöð og þá varð ég orðlaus (í c.a. fyrsta eða annað skiptið á ævinni). Við semsagt gengum inn í matvöruverslun til þess að kaupa í matinn, þegar inn var komið blöstu við mörghundruð metrar af hillum með mat í. Bara kattamatsdeildin var álíka stór og Hagkaup í Skeifunni (og ekki er ég þekkt fyrir að ýkja). Það var ekki nóg með að mikið væri af mat heldur voru umbúðirnar FLENNISTÓRAR. T.d. voru tómatsósuföturnar svo stórar að þær hefðu ekki einu sinni komist inn í Bæjarins bestu. Þegar ég hafði náð mér eftir mesta sjokkið (tekið asmalyfin og blásið í bréfpoka) rölti ég yfir í sælgætisálmuna, ég var komin í himnaríki, gómsætt sælgæti í risaumbúðum blasti hvarvetna við, endalausar raðir af gotteríi í allar áttir og verðið skammarlega lágt. Það ótrúlegasta við þetta var þó að sælgætisgrísinn ég kom aðeins út með eitt lítið Ritter Sport (reyndar hvítt með smarties-limited edition) og lítinn mars poka. Þetta var sko merkileg lífsreynsla síðan snaraði ég mér inn í Elko þeirra Þjóðverja og keypti usb minni og næstum því stafræna myndavél.

� dag fórum við svo á bílnum fína auðvitað að skoða Dybbol Mölle, þjóðartákn þeirra Dana, þar sem þeir börðust í tvígang hetjulega við Þjóðverja. Svo skiluðum við bílnum og ég skilaði Auði í vinnuna og fór í leiðangur í miðbæinn og hjólaði svo meðfram sjónum inn í skóg og endaði svo heima á Skogvej. Þetta var fínn dagur, dagskrá morgundagsins er óákveðin en á föstudag verður haldið af stað og kíkt til �rhus til þeirra Stefáns og Þyríar.

þriðjudagur, september 09, 2003

Við landamærin 

Þá er ég komin til Sönderborg og farin að geta skrifað á mannamáli aftur. Fékk höfðinglegar móttökur þar sem gestgjafar mættu á lestarstöðina á hjólum að dönskum sið...planið er að vera hérna eitthvað næstu daga og skoða sig um á Als. Svo er á döfinni að kíkja yfir til Þýskalands, ég er því að dusta rykið af þýskukunnáttunni, man samt eiginlega ekki neitt nema Mein namen ist Derrick, sem ég er ekki viss um að komi mér sérstaklega langt...en hver veit! Þar fyrir utan kann ég að segja að ég heiti Bryndís og sé 17 ára og svo kann ég eina ágæta klámvísu sem ég er þó að hugsa um að fara ekki með.

mánudagur, september 08, 2003

Nu hef eg yfirgefid hina yndislegu borg Stokkholm, thar sem eg var nokkrum dogum lengur en eg ætladi mer, og er komin i heimabæ H.C. Andersens. Thad er nu reyndar ljomandi thvi thad var ogurlega vel tekid a moti mer thegar eg kom threytt og myglud eftir 7 tima lestartur. Er i dag (vaknadi vandrædalega seint) buin ad vera ad spassera herna i midbænum og sinna akvednum utrettingum sem eg thurfti ad sinna, eins og t.d. ad fara a netid. Verd her thar til i kvold en tha held eg til Sonderborg thar sem eg ætla ad vera næstu daga.
Eg mæli med Stokkholmi ef folk er ad huga ad borgarferd, mjog falleg borg, serstaklega gamli bærinn, mikid af skemmtilegum sofnum eins og t.d Vasa safnid og svo eru thar ljomandi veitingastadir og verslanir ef folk er i theim hugleidingum. Sjalf for eg i gongu i Turista thjodgardinum, thadi veitingar af sænskum veitingahusaeiganda sem rak Tælenskt veitingahus um bord i bat, ljomandi finn stadur, for i guided tour um gamla bæinn, heimsotti Skansinn, sa Vasa skipid og margt fleira.
En nu er eg farin ad skoda hus H.C Andersens og hanga i bakarium...

miðvikudagur, september 03, 2003

Var ad leggja ad bryggju i Stokkholmi, dagsplanid er ad labba i baenum thar til Palmi litli fer til Koben

This page is powered by Blogger. Isn't yours?